Heilbrigðiskerfið

Því meira sem þú veist um heilsu þína, því virkari verður þú í meðferðinni. Landspítali hefur gefið út sjúklingaráðin tíu og hvetur sjúklinga og aðstandendur að nýta sér þau í samskiptum sínum við heilbrigðisstarfsfólk.

Sjúklingaráðin tíu:

  1. SPURÐU - Spurðu ef eitthvað er óljóst og veldur þér áhyggjum. Spurðu aftur ef þú skilur ekki.

  2. SEGÐU FRÁ - Láttu vita um ofnæmi fyrir lyfjum, mat eða öðru, um lyfin sem þú tekur, vítamín, náttúrulyf, sérstakt mataræði eða ef þú ert barnshafandi. Heilbrigðisstarfsfólk þarf nákvæmar upplýsingar sem getur þurft að ítreka til öryggis.

  3. LÁTTU VITA EF ÞÚ FINNUR TIL - Segðu frá óvenjulegri líðan og einkennum þótt tengsl við veikindin virðist óljós.

  4. TRYGGÐU RÉTT NAFN OG KENNITÖLU - Vertu viss um að nafn þitt og kennitala sé rétt hjá starfsfólki áður en kemur að rannsókn, meðferð eða lyfjagjöf.

  5. FÁÐU UPPLÝSINGAR UM MEÐFERÐINA - Ræddu við heilbrigðisstarfsfólkið um meðferð og rannsóknir til þess að skilja sem best tilgang þeirra.

  6. HAFÐU NÁKOMNA MEÐ Í VIÐTÖL - Gott er að hafa einhvern nákominn með í viðtölum því það getur dregið úr hættu á misskilningi og gagnast við að rifja upp hvað kom fram í þeim.

  7. TILGREINDU NÁKOMINN SEM MÁ FÁ UPPLÝSINGAR - Heilbrigðisstarfsfólki er skylt að virða trúnað en má gefa þeim sem þú eða forráðamaður þinn tilgreinir upplýsingar um líðan þína eða meðferð.

  8. SPURÐU UM FRAMHALD MEÐFERÐAR - Fáðu að vita um framhald meðferðar fyrir útskrift eða í lok göngudeildarheimsóknar, hvar hún sé veitt, af hverjum og hvað þú þurfir að gera vegna hennar.

  9. ÞEKKTU LYFIN ÞÍN - Mikilvægt er að vita hvernig lyfin virka, hversu lengi á að taka þau, um breytingar á lyfjainntöku og áhrif af mat og drykk. Farðu yfir lyfjakortið með útskriftarlækninum.

  10. SKRIFAÐU MINNISPUNKTA - Skráðu reynslu þína í dagbók, líðan og helstu atriði um meðferðina. Undirbúðu þig fyrir viðtöl og skrifaðu niður spurningar sem þú vilt fá svarað.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins veitir upplýsingar og ráðgjöf um allt sem tengist krabbameini. Hjá Ráðgjafarþjónustunni starfa hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar, sálfræðingur og kynfræðingur. Síminn 800  4040 er opinn alla virka daga og alltaf má senda tölvupóst á netfangið radgjof@krabb.is.



Ertu með ábendingar varðandi þessa síðu?